Markaðsverkefni
Íslandsstofa er framkvæmdaraðili ýmissa samstarfsverkefna sem eiga það sameiginlega markmið að auka vitund, áhuga og eftirspurn erlendis eftir vörum, þjónustu og sérfræðiþekkingu íslenskra fyrirtækja.
Hér að neðan má skoða helstu verkefni og starfsemi þeirra á árinu 2020.
Ísland - saman í sókn
Markaðsaðgerðir verkefnisins á árinu snerust einkum um að viðhalda áhuga á áfangastaðnum Íslandi þegar ferðalög lágu niðri megnið af árinu. Haldnar voru vinnustofur með stjórn og markaðshópi verkefnisins um meginmarkmið markaðssetningar þegar ferðaáhugi eykst á ný. Í júní fór landkynningamyndbandið Enough í birtingu, í júlí var herferðin Let it Out sett í gang og Joyscroll herferðin fór af stað í desember.
Seafood from Iceland
Aðilar innan sjávarútvegsins hafa snúið bökum saman og náð saman um markaðssetningu með sameiginleg skilaboð um íslenskan sjávarútveg.
Síðsumars hóf Seafood from Iceland sína fyrstu markaðsherferð á Bretlandseyjum, Fishmas. Um 6 milljón Breta horfðu á myndbandið um Father Fishmas þar sem Egill Ólafsson lék aðalhlutverk, ásamt íslenskum gæðafiski.
Film in Iceland
Heimsfaraldur hafði minni áhrif á Íslandi en víða um heim þegar horft er til kvikmynda- og sjónvarpsgerðar á árinu 2020. Þau erlendu verkefni sem voru fyrirhuguð á árinu urðu kannski ekki að veruleika sökum heimsfaraldurs. Hins vegar komu í stað þeirra önnur verkefni til landsins sem ekki voru á döfinni og voru erlend verkefni yfir 20 talsins á árinu.
Green by Iceland
Grænvangur leiðir saman íslensk fyrirtæki og stjórnvöld til að vinna að sameiginlegu markmiði um kolefnishlutlaust Ísland 2040. Auk þess eru kynntar íslenskar grænar lausnir erlendis í samstarfi við Íslandsstofu undir merkjum Green by Iceland. Vefur Green by Iceland fór í loftið í lok árs en þar má m.a. kynna sér upplýsingar um fjölbreytta endurnýjanlega orkuþekkingu Íslendinga og leitarvél fyrir íslensk fyrirtæki sem flytja út grænar lausnir.
Horses of Iceland
Á undanförnum árum hefur tekist vel að markaðssetja íslenska hestinn undir merkjum Horses of Iceland (HOI). Markmiðið með þessum sameiginlega vettvangi og samræmdum skilaboðum er að auka slagkraft markaðssetningar innanlands og erlendis. Metútflutningur var á íslenskum hestum árið 2020 eða sem menur 53% aukningu frá 2019. Þetta er mesti útflutningur á íslenska hestinum í 23 ár.
Meet in Reykjavik
Starfsemi Meet in Reykjavik færðist yfir til Íslandsstofu í júlí 2020 þar sem það verður rekið sem sjálfstætt verkefni. Áhrif heimsfaraldursins komu snemma fram í þessum geira og er ýmislegt sem bendir til þess að hann verði lengur að ná fyrri styrk en önnur ferðaþjónusta og hafa verkefni ársins að miklu leyti snúið að því að koma mikilvægum upplýsingum til viðskiptavina og samstarfsaðila erlendis.
Iceland Natuarally
Iceland Naturally er markaðs- og kynningarverkefni aðila með hagsmuni á mörkuðum í Norður-Ameríku sem miðar að því að auka áhuga á Íslandi, íslenskum afurðum og þjónustu og á Íslandi sem áfangastað. Árið 2020 leit fyrsta rafræna Taste of Iceland hátíðin dagsins ljós og samanstóð hún af 14 vefviðburðum. Einnig var boðið upp á beinar útsendingar á vefnum þar sem tekin voru fyrir fjölbreytt viðfangsefni sem samtals yfir 600.000 manns fylgdust með.
Icelandic
Íslandsstofa tók á seinni hluta árs 2020 við daglegum rekstri Icelandic Trademark Holding ehf. Félagið er eigandi vörumerkjanna Icelandic og Icelandic Seafood sem standa fyrir hágæða íslenskar sjávarafurðir. Á árinu 2020 var unnið að gerð tveggja nýrra nytjaleyfissamninga, annars vegar við íslensk dótturfélög Brims í Japan og Kína og hins vegar við íslenska félagið Iceland Seafood vegna sölu og markaðssetningar undir merkjum Icelandic í Evrópu.